Um vinnustaðinn
Hekla sérhæfir sig i sölu og þjónustu á nýjum og notuðum bílum frá Audi, Volkswagen, Skoda og Mitsubishi. Allt eru þetta framleiðendur sem þekktir eru um allan heim fyrir framúrskarandi gæði og áreiðanleika.
Hjá okkur starfar samstilltur hópur reyndra og þjónustulipra 120 starfsmanna sem hafa það að leiðarljósi að veita framúrskarandi þjónustu og ráðgjöf. Öflug liðsheild einkennir fyrirtækið sem hefur undanfarin ár verið leiðandi í sölu og viðhaldi á vistvænum bílum.
Við bjóðum upp á alhliða bifreiðaþjónustu og búum yfir einu best búna bifreiðaverkstæði landsins þar sem starfa þrautþjálfaðir bifvélavirkjar.
Hekla er staðsett við Laugaveg 174 í Reykjavík en Hekla Notaðir Bílar eru á Kletthálsi 13 en þar er að finna mikið úrval nýlegra og notaðra bíla.
Þjónusta og sala Heklu snýst um þig.